Við fengum frábærar viðtökur í síðustu viku þegar við buðum upp á afslappað samtal við Auði Axelsdóttur iðjuþjálfa, sem er ein af stofnendum Hugarafls.
Í þessari viku héldum við ótrauð áfram og buðum upp á opið samtal við Braga Reyni Sæmundsson sálfræðing í Hugarafli. Það getur hjálpað að ræða málin og styðja hvort annað við að komast í gegnum þetta tímabil saman.
Við sendum beint út hér á facebook, föstudaginn 3. apríl kl. 11 og fólki gafst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem því lá á hjarta.
Við erum hér ♥
Hugarró með Hugarafli – opið samtal með Braga Sæmundssyni sálfræðing
Posted by Hugarafl on Föstudagur, 3. apríl 2020