Skip to main content
Fréttir

Erum við nóg?

By janúar 17, 2019No Comments

Erum við nóg? Er í lagi að vera mennsk, er í lagi að opna umræðu um geðheilbrigðismál og hvað vantar í umfjöllunina?

Við ræddum Kastljósviðtalið umtalaða á Hugaraflsfundi í gær. Í viðtalinu ræddi Einar Þorsteinsson við Öldu Karen Hjaltalín fyrirlesara og Hafrúnu Kristjánsdóttur sálfræðing um orð sem Alda Karen hafði látið falla í kynningum á fyrirlestri sínum.

Á Hugaraflsfundi. Mynd úr safni Hugarafls.

Mörg okkar í Hugarafli þekkjum á eigin skinni hvernig það er að langa ekki að lifa lengur og vitum vel að vandinn er margþættur, orsakirnar djúpstæðar og hvert og eitt okkar þarf að finna sína leið úr öngstrætinu. Það verður vissulega ekki einfaldað í eina fullyrðingu líkt og „ég er nóg“. Við sáum hinsvegar margt athugavert við viðtalið í Kastljósi þar sem fréttamaður gekk hart að Öldu og Hafrún sálfræðingur var með einhliða gagnrýni á málflutning Öldu.

Hér hefur opnast tækifæri til umræðu um geðheilbrigðismál og við kunnum Öldu þökk fyrir það. Hvað fannst okkur vanta í umfjöllunina í Kastljósinu? Það vantaði algjörlega innsýn einstaklinga með persónulega reynslu af slíku öngstræti. Hafrún sálfræðingur teiknaði upp svarta mynd af sjálfsvígshugsunum og -tilraunum sem virtust í umræðunni einungis enda á einn veg; það er með fráfalli einstaklingsins. Orðræðan var afar sjúkdómsmiðuð og mikið gert úr geðsjúkdómastimplinum. Talað var um að tíðni sjálfsvíga hefði ekkert breyst og ekkert borið árangur í þeim efnum enn. Vonleysið var algjört. Einnig virtist sem einungis þaullærðir fagaðilar mættu ræða þessi mál og enginn annar.

Hverju viljum við koma á framfæri?
-Það er von. Þú getur verið í öngstræti og náð góðri líðan á nýjan leik. Við þekkjum það á eigin skinni að vera í svartasta svartnætti en finna tilgang og áframhaldandi tilvist hér á jörðu.
-Það eru til leiðir til að líða betur. Það er til fullt af valmöguleikum og það er okkar verkefni að prófa okkur áfram og finna hvað hentar okkur til að ná bata.
-Það er í lagi að tala um það ef okkur langar ekki að lifa lengur. Það skiptir máli að hafa einhvern sem hlustar. Svo þegar við erum komin á betri stað er líka í lagi að deila því sem hefur virkað fyrir okkur persónulega. Jafnvel einföldum ráðum eins og möntrum!

Viðtalið í Kastljósinu má sjá hér.