Skip to main content
Fréttir

Robert Whitaker á Klikkinu: Lyfjamiðað samfélag

By júní 13, 2017No Comments

Robert Whitaker á fyrirlestrinum 11. maí 2017.

Í þessum þætti er fyrirlestur Robert Whitaker sem fór fram á ráðstefnu Hugarafls „Lyfjamiðað samélag“ þann 11. maí síðastliðinn.

Erindi hans ber heitið: „Anatomy of a Global Epidemic:
Increased Disability Due to Mental Disorders in the Age of Prozac“.

Robert hefur sérhæft sig í skrifum um læknisfræði og vísindi.
Greinar hans um geðlæknisfræði og lyfjaiðnaðinn hlutu George Polk verðlaunin fyrir læknisfræðileg skrif. Árið 1998 var hann einn höfunda ritraðar um slæma meðhöndlun í geðlæknisfræðilegum rannsóknum og var tilnefndur til Pulitzer Verðlaunanna fyrir starf í þágu almennings.

Bók hans Anatomy of an Epidemic hlaut verðlaun árið 2010 fyrir rannsóknarblaðamennsku.