Skip to main content
Fréttir

,,…öll þessi fínu orð…“

By júní 6, 2017No Comments

,,…öll þessi fínu orð.. “ er titillinn á nýjasta þætti Klikksins sem er nýung í hlaðvarpi Kjarnans.

Að þessu sinni eru umræður heldur frábrugðnar frá síðustu þáttum enda heitar umræður í samfélaginu í dag. Þórður Páll Jónínuson og Agla Hjörvarsdóttir eiga góðar samræður um hugmyndafræði Hugarafls og hvernig hún virkar fyrir þau, ásamt því eru nokkur örviðtöl við Hugaraflsmeðlimi þar sem spurt er “ hvað hefur Hugarafl gert fyrir þig ?“.  Nánar má lesa um hugmyndafræði Hugarafls s.s. Valdeflingarpunktana  á heimasíðu félagsins.

Umsjónarfólk þáttarins eru; Þórður Páll Jónínuson, Agla Hjörvarsdóttir, Magnús Gauti Geirsson, Kristinn Stinni Ólafsson og Guðmundur Hrannar Eiríksson.  Upptökustjóri og framleiðandi; Guðmundur Hrannar Eiríksson

Upptökuna má nálgast hér fyrir neðan og á Kjarnanum. Við hvetjum alla til þess að hlusta og deila áfram;