Skip to main content
FréttirKlikkið

Klikkið – Handan fíknar, jógísk leið til bata

By janúar 18, 2020febrúar 27th, 2020No Comments

Sigrún Halla Unnarsdóttir og Estrid Þorvaldsdótir komu til okkar á dögunum og kynntu fyrir okkur námskeið sem er á döfinni. Námskeiðið heitir Handan fíknar, Jógísk leið til bata.
Námskeiðið hentar vel fyrir fólk í bata frá áföllum og fíknum, heilbrigðisstarfsfólk, jógakennara og alla sem leita jákvæðra breytinga og leiðbeininga við að þróa andlega iðkun.
Á námskeiðinu munt þú meðal annars læra að:
– Nota Kundalini jóga og hugleiðslu til að endurnýja líkama, huga og sál.
– Nota jógíska tækni til að minnka fíknir
– Endurhlaða taugakerfið, heilan, framheilan og nýrnahettur með jóga og náttúrulækningum.
– Fá aðgang að andlegu miðjunni innra með þér og lærðu að stóla á þinn æðri mátt.

Nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér.