Skip to main content
FréttirKlikkið

Klikkið – Að hafa aðgang að upplýsingum og úrræðum

By maí 12, 2018mars 5th, 2020No Comments

Ákvarðanataka ætti ekki að eiga sér stað í tómarúmi. Vænlegast er að taka ákvarðanir þegar nægar upplýsingar eru fyrir hendi svo hægt sé að vega og meta mögulegar afleiðingar mismunandi valkosta. Þrátt fyrir það takmarka margir fagmenn slíkar upplýsingar í þeirri trú að það sé í þágu notandans. Þessi trú á vanhæfni skjólstæðinganna getur síðan styrkst ef notendur, sem hafa ekki fengið fullnægjandi upplýsingar, taka þar af leiðandi hvatvíslegar ákvarðanir.

Í þessum þætti ræðir Árni Stein­gríms­son við Pál Ármann Páls­son og Sögu Ásgeirsdóttur um þennan vald­efl­in­g­ar­punkt og er þátt­ur­inn annar þáttur í seríu um Vald­efl­in­g­ar­punkt­ana 15. Frek­ari upp­lýs­ingar um vald­efl­ingu má finna á hugarafl.is/vinnuskilgreining-a-valdeflingu/