Skip to main content
Geðheilbrigðismál

Fríða í góðu viðtali á Hringbraut

By ágúst 30, 2016No Comments

Formaður Hugarafls, Málfríður Hrund Einarsdóttir, sagði sögu sína í þættinum Örlögin á Hringbraut nýverið.  Fríða, eins og við í Hugarafli þekkjum hana betur er að gera heilmikið af frábærum hlutum fyrir sig og aðra með starfi sínu fyrir Hugarafl og Drekaslóð.  Eins og Sigmundur Ernir nefndi í viðtalinu er erfitt að gera sér í hugarlund að Fríða hafi gengið í gegnum svo dimma dali miðað við þetta frábæra viðtal og hversu vel hún stendur sig í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur.   En þannig virkar batinn þegar tekist er á við verkefnin með valdeflingu og batamódel að leiðarljósi og heiðarleika, ást og kærleik í fyrirrúmi.  Viðtalið við Fríðu má sjá hér fyrir neðan og hvetjum við alla til þess að horfa á það 🙂