Skip to main content
Fréttir

Drekarnir í Hugarafli – Hugarró á föstudag!

By nóvember 22, 2022No Comments
Hugarró Hugarafls er beint streymi á facebook síðu Hugarafls. Við hófum þessa viðburði í mars 2020 til að koma á móts við þörf almennings um opna umræðu um geðheilbrigðismál.
Við ætlum að taka þetta skrefinu lengra og ræða um mál sem varða félagið okkar, hugmyndafræðina og það sem okkur liggur á hjarta.
Öll áhugasöm eru hvött til að taka þátt.
Að þessu sinni verður umræðan Drekarnir í Hugarafli og ræðir líka um ofbeldi og andlegar áskoranir. Thelma Ásdísardóttir leiðir spjallið.
Hér gefst tækifæri til að senda inn spurningar, leita lausna eða tala um það sem ykkur liggur á hjarta. Samtalið er opið og á ykkar forsendum.