Skip to main content
Greinar

Verðlaunuð fyrir frumkvöðlastarf og dugnað

By febrúar 21, 2014No Comments

HVATNINGARVERÐLAUN Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) voru veitt í annað sinn í gær á alþjóðadegi fatlaðra.

HVATNINGARVERÐLAUN Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) voru veitt í annað sinn í gær á alþjóðadegi fatlaðra. Veitt voru þrenn verðlaun, til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings, sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Guðjón Sigurðsson var verðlaunaður í flokki einstaklinga fyrir dugnað og árangur í málefnum fatlaðra. Tónstofa Valgerðar fyrir frumkvöðlastarf í þá veru að nemendur með sérþarfir njóti forgangs til tónlistarnáms. Akureyrarbær var verðlaunaður í flokki stofnana, fyrir frumkvöðlastarf í útfærslu á „Independent living“ notendastýrðri þjónustu fyrir fatlaða. Guðjón er fyrir miðri mynd. Honum á hægri hönd er Valgerður Jónsdóttir skólastjóri Tónstofu Valgerðar, en á vinstri hönd Kristín Sigursveinsdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar.
silja@mbl.is