Skip to main content
Fréttir

Vel heppnuð ráðstefna um notkun geðlyfja

By maí 12, 2017No Comments

Það var þétt setinn bekkurinn á Hilton hótel í gær þegar Hugarafl fékk til sín góða gesti til að ræða notkun geðlyfja á Íslandi.  Eins og búast mátti við voru skoðanir skiptar en allar raddir fengu að heyrast sem er forsenda þess að hægt sé að eiga heiðarlega umræðu um málefnið.  Hljóðupptökur frá rástefnunni og slæður frá fyrirlesurum verða aðgengilegar á veraldarvefnum innan tíðar.  Hugarafl vill nota tækifærið og þakka öllum fyrir þennan góða dag og vonandi erum við öll einhverju nær um stöðu mála þegar kemur að notkun geðlyfja á Íslandi og fengið fræðslu um aðrar leiðir sem eru í boði hér á landi og í löndunum í kringum okkur.