Skip to main content
Fréttir

Pistill frá Hugaraflskonu; Fjólu Kristínu Ólafardóttur

By febrúar 11, 2017No Comments

Hugaraflsfundir hafa verið grunnur af starfsemi Hugarafls frá upphafi.

Sit heima hjá mér í tilfininga rússíbana og finnst ég bara verða að skrifa nokkur vel valin orð. Þvílíkur KRAFTUR var í Hugaraflsmönnum í dag, frábær og alveg hreint stórkostlegur fundur í dag og fundarstjóri ofboðslega vel undirbúin og með virkilega þarft málefni þar sem allir gátu tjáð sig með, vel gert!!! Fann fyrir svo mikilli samkennd í húsi og allt einhvernveginn í gangi, hjálp og stuðningur allstaðar. Varð vitni að stórkostlegum atburði í dag og sýnir svo akkúrat það sem Hugarafl gengur fyrir!! Vá hvað ég er stolt af okkur!!! Ég er svo fáranlega stolt af því að vera Hugaraflskona!! ÁFRAM VIÐ.