-vettvangur: að aðstandendur hafi vettvang til að ræða sín mál
-styrkja hlutverk: að aðstandendur styrkist í hlutverki sínu sem nánasti aðstandandi, átti sig á nálgun, gefandi samskiptum og viðeigandi þátttöku í samskiptum við sinn nánasta
-fræðsla: að aðstandendur fái alhliða fræðslu um flest það sem snýr að andlegum áskorunum, leiðum til úrbóta og viðeigandi bjargráðum fyrir aðstandendur
-eigin heilsa: að aðstandendur séu meðvitaðir um eigin heilsu og líðan
-finna þjónustu: að aðstandendur þekki mögulegar leiðir innan kerfisins þegar leita skal að þjónustu
-réttindi: að aðstandendur verði meðvitaðir um réttindi sín
Aðstandendahópurinn hefur verið starfræktur frá upphafi Hugarafls, nú í rúm 17 ár. Hér er reynsla aðstandenda sett í farveg, reynslunni er miðlað til nýrra meðlima sem eru í fyrsta sinn að kynnast andlegum áskorunum í fjölskyldunni og vantar stuðning til að efla bjargráð og að koma auga á leiðir. Þagnarskylda er höfð í heiðri á fundunum. Einnig er lögð áhersla á að málflutningur fundargesta sé þannig að umræða fari vel fram og að ekki sé talað neikvætt um persónur eða þær nafngreindar.