Skip to main content
Fréttir

Aðalfundur Hugarafls

By maí 10, 2023maí 17th, 2023No Comments

Aðalfundur Hugarafls

 

Aðalfundur Hugarafls verður haldinn miðvikudaginn 31. maí nk., klukkan 13:00 – 15:00 í húsakynnum Hugarafls, Síðumúla 6, á annarri hæð. 

Á fundinum verður kosið til stjórnar og framkvæmdastjórnar. Óskað er eftir framboðum fyrir setu í framkvæmdastjórn Hugarafls, til aðalframkvæmdastjórnar og varaframkvæmdastjórnar, og verða framboðin að berast fyrir aðalfundinn. Þau sem vilja bjóða sig fram þurfa að hafa verið gildir Hugaraflsfélagar í minnst eitt ár og þekkja vel til hugmyndafræðinnar og innviði starfsins, samkvæmt lögum Hugarafls. Framboð skulu berast til formanns Hugarafls í tölvupósti á netfangið frida@hugarafl.is eða í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar. 

Lagabreytingar sem lagðar eru fyrir er að finna hér með fundarboði, sbr. google docs skjal hér að neðan.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum Hugarafls.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Ávarp formanns, aðalfundur settur
  2. Staðfest skipan fundarstjóra, fundarritara og tveggja atkvæðateljara
  3. Staðfest lögmæti aðalfundarboðs
  4. Skýrsla stjórnar
  5. Ársreikningur síðasta árs kynntur og borinn upp til samþykktar
  6. Lagabreytingar
  7. Kosning stjórnar
  8. Kosning framkvæmdastjórnar
  9. Önnur mál
  10. Fundarslit

Sjá má tillögur að lögum hér. Frumvarp til laga um breytingu á lögum Hugarafls 2023