Mánudaginn 10. apríl áttu fulltrúar Hugarafls fund með Óttari Proppé, heilbrigðisrráðherra og aðstoðarmönnum hans í heilbrigðisráðuneytinu. Á fundinum gafst gott tækifæri til að kynna starfsemi Hugarafls og fjölmörgum spurningum var svarað sem snúa að samtökunum. Eins og áður hefur komið fram leggur Hugarafl nú áherslu á að komið sé á langtíma samningi við félagið. Þannig er hægt að tryggja áframhaldandi batamiðaða og valdeflandi nálgun fyrir þá sem leita til samtakanna og koma í veg fyrir það öryggisleysi sem myndast við núverandi fyrirkomulag á styrkveitingum. Hugaraflsfólk bauð ráðherra og aðstoðarmönnum hans jafnframt í heimsókn í Hugarafl og vonumst við til þess að sjá hann í Borgartúni 22 sem fyrst. Ráðherra lýsti yfir áhuga á áframhaldandi samtali og rætt var um að boða til annars fundar í kjölfarið.
Við mælum með
Færslusafn
Efnisorð
Heimsókn til Hugaraflsfólks endurhæfing Styrkur geðheilbrigðismál valdefling úrræði iðjuþjálfi aðstandendur skjólstæðingar Samfélag GET Geðhjálp geðlyf Samkomubann LSH Hugarró fagfólk Andlegar áskoranir Hugarafl heilsugæsla Unghugar bjargráð hugmyndafræði bataferli Klikkið batasögur bati fordómar notendur covid-19
Tengdar færslur
Fréttir
Óskað eftir þátttakendum! Mikilvæg alþjóðleg rannsókn á rafmagnsmeðferð
Fjóla Ólafardóttirfebrúar 11, 2024