Skip to main content
Geðheilbrigðismál

10. september – Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga

By september 5, 2017No Comments

Sunnudaginn 10. september kl.20 verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni í Reykjavík til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Dagskrá:
• Sr. Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju flytur hugvekju
• Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson syngur nokkur lög við undirleik Ásgeirs Aðalsteinssonar.
• Sigurþóra Bergsdóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni.
• Kveikt verður á kertum í minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.

Að kyrrðarstundinni standa Geðhjálp, Geðsvið Landspítala, Hugarafl, Landlæknisembættið, Minningarsjóður Orra Ómarssonar, Ný dögun, Pieta, Rauði kross Íslands og Þjóðkirkjan.

Einnig verða kyrrðarstundir haldnar á Akureyri, Egilsstöðum, Húsavík og í Reykjanesbæ. Á Húsavík hefst dagskráin klukkan 20:00.

Kyrrðarstundirnar eru öllum opnar og aðgangur er ókeypis