Skip to main content
Fréttir

Annasöm vika í Hugarafli að baki

By september 1, 2017No Comments

Hugaraflsfólk hefur víða komið við í liðinni viku. Auk hefðbundins batamiðas starfs í Borgartúninu var formaður Hugarafls, Málfríður Hrund Einarssdóttir í viðtali á Bylgjunni.  Viðtalið er hægt að hlusta á hér fyrir neðan.  Fulltrúar Hugarafls mættu svo á fimmtudag hjá vel­ferðar­nefnd Alþing­is til að kynna starfsemina og veita upplýsingar til nefndarinnar.   Var vel tekið á móti okkur og vonum við að nefndarmenn kíki til okkar í heimsókn einhvern daginn til að fá frekari tilfinningu fyrir starfinu.