Fyrsta skosk/íslenska uppistandshátíðin, „Scotch on Ice“ verður haldin í Reykjavík 8.-10. febrúar. Hópur grínista frá Skotlandi ætlar þá að sækja Íslendinga heim til að kynnast íslensku gríni og hjálpa okkur að hlæja í skammdeginu. Íslenskir uppistandarar slást í hópinn á sýningunum því ef einhverjar tvær þjóðir eiga samleið í gríni, þá eru það Ísland og Skotland!
Uppistandshátíðin stendur yfir í þrjá daga og hefst á Gauknum fimmtudaginn 8. febrúar, kl. 21:00. Á föstudeginum verður svo uppistand í Gamla bíó kl.20:00 og hátíðin endar í Hörpunni, laugardaginn 10. febrúar, kl. 20:00. Fjölmargir íslenskir og skoskir grínistar munu kitla hláturtaugar okkar þessa daga eins og sjá má í meðfylgjandi auglýsingu. Samkvæmt henni verður allt efni flutt á ensku með íslenskum eða skoskum hreim eftir því sem við á 😀
Scotch on Ice uppistandshátíðin ætla að styðja við bakið á Hugarafli og styrkja um leið alvöru valdeflingu, jafningjasamstarf og batanálgun félagasamtakanna að bættu geðheilbrigði fyrir alla. Allir sem kaupa miða á sýningarnar geta valið að styrkja Hugarafl um 500 krónur eða meira. Hugaraflsfólk mun ekki láta sig vanta á sýningarnar og við hvetjum fólk til að koma og hlæja með okkur. Og endilega bjóðið einhverjum á uppistand sem þarf að hlæja!