Í tilefni af Alþjóða Geðheilbrigðisdeginum 10.okt mun fara fram kynning á eCPR eða Andlegu hjartahnoði hjá okkur í Hugarafli. Við munum fara yfir megin inntak í þeirri nálgun sem eCPR er, hvað er hún öðruvísi en áður hefur verið notað, hvar er nálgunin aðallega notuð og hvers vegna virkar hún svona vel. Þar sem yfirskrift 10.okt í ár er „Virðing er fyrsta hjálp“ er það frábært að geta boðið uppá þá nálgun sem notendur geðheilbrigðiskerfis hafa fundist ein sú mesta virðing í. Í Hugarafli eru 3 þjálfarar sem hafa náð sér í þau réttindi sem þarf til að mega kenna eCPR en það eru þau Einar Björnsson, Málfríður Einarsdóttir og Auður Axelsdóttir. Þau munu leiða okkur inní þennan fróðleik en á staðnum verður hægt að bóka sig á þau námskeið sem framundan eru.
Við mælum með
Færslusafn
Efnisorð
Geðhjálp Hugarafl Samkomubann skjólstæðingar úrræði notendur bataferli Klikkið hugmyndafræði Heimsókn til Hugaraflsfólks GET bjargráð fordómar LSH bati Andlegar áskoranir Unghugar covid-19 Hugarró aðstandendur endurhæfing valdefling heilsugæsla fagfólk Styrkur Samfélag geðheilbrigðismál batasögur geðlyf iðjuþjálfi
Tengdar færslur
Fréttir
Óskað eftir þátttakendum! Mikilvæg alþjóðleg rannsókn á rafmagnsmeðferð
Fjóla Ólafardóttirfebrúar 11, 2024