Skip to main content
FjarfundirFréttir

Stefán Þór býður í heimsókn!

Heimsókn til Hugaraflsfélaga viðburðarserían heldur ótrauð áfram og að þessu sinni býður Stefán Þór eða Stebbi okkar í heimsókn. Stefán ætlar að segja frá reynslu sinni af andlegum áskorunum, hvað hefur hjálpað sér, fara yfir hljóðfærin sín og margt fleira!

Heimsóknin verður sýnd í beinni útsendingu á likesíðu Hugarafls á Facebook; https://www.facebook.com/Hugarafl/

Um viðburðinn:

Langar þig að kíkja í heimsókn til Hugaraflsfélaga?

Staðan í samfélaginu hefur takmarkað ferðir okkar og breytt leiðum til að halda í þýðingarrík tengsl og samskipti. Við í Hugarafli búum svo vel að eiga fjölda hæfileikaríkra félaga sem eru reiðubúin til að bjóða alþjóð í rafræna heimsókn. Hugmyndin er að veita smá krydd í tilveruna með tónlist, söng, handverki eða annarri sköpun.

Við munum senda út í beinu streymi á likesíðu Hugarafls þriðjudaginn 12. maí kl. 14 og reikna má með að heimsóknin vari í tæpan hálftíma.

Í þetta skiptið býður Stefán Þór Hugaraflsfélagi ykkur í heimsókn en hann ætlar að segja frá reynslu sinni af andlegum áskorunum,hvað hefur hjálpað sér, fara yfir hljóðfærin sín, tónlistina og mögulega mótorhjólin líka! 🙂 Stebba hlakkar mikið til að taka á móti ykkur á þriðudaginn!