Skip to main content
Fréttir

Maraþonhlaup Íslandsbanka gekk vel!!

By ágúst 20, 2018No Comments

 

Elsku hlauparar og aðrir stuðningsmenn!! Erum djúpt snortin og þakklát yfir gærdeginum, hlaupadeginum mikla á degi Menningarnætur. Dagurinn var í alla staði frábær og okkar elskulegu hlauparar stóðu sig svo vel!! Litskrúðugur og fallegur hópur spretti úr spori fyrir Hugarafl, starfseminni til stuðnings. Það er ómetanleg hvatning fyrir okkur sem förum nú inn í haustið með baráttugleðina og samstöðuna að vopni.Takk elsku vinir, velunnarar og frábæru hlauparar!! Klappliðið okkar stóð vaktina við góðar undirtektir, vona að allir hlauparar hafi orðið vör við þau og vonandi litið við og fengið orkudrykk á hlaupunum.?
Þann 1.september kl.13:00 er hlaupurum og aðstandendum þeirra boðið í smá þakklætiskaffi og vöfflur í Borgartúni 22, vonumst til að sjá ykkur öll❤️
Kærar kveðjur og djúpt þakklæti frá Hugarafli❤️