Mikið erum við þakklát og heppin með skilninginn í garð okkar starfs sem og annarra félagasamtaka sem eru að veita mikilvæga þjónustu til viðkvæmra hópa sem gjarnan hafa sætt jaðarsetningu.
„Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur nú veitt 28 félagasamtökum styrk til að auka þjónustu við viðkvæma hópa í baráttunni við COVID-19 faraldurinn. Styrkurinn hljóðar upp á 55 milljón krónur en miklar raskanir hafa verið í samfélaginu vegna faraldursins, ekki síst fyrir viðkvæma hópa.
„Það er er aukið álag á samfélaginu öllu um þessar mundir og þá ekki síst hjá viðkvæmum hópum samfélagsins. Kvíði og streita getur aukist í tengslum við samkomubann, efnahagslegar áskoranir og minna aðgengi að stuðnings- og þjónustukerfum, og við vitum að félagasamtök gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að þjónustu við marga viðkvæma hópa,“ sagði Ásmundur Einar um málið.
Markmiðið með styrkjunum er að bregðast við auknu álagi hjá félagasamtökunum og gera þau betur í stakk búin til að til að veita fólki stuðning og ráðgjöf í ljósi stöðunnar. „Við viljum tryggja það að þau geti haldið sínu góða starfi áfram á þessum krefjandi tímum, enda eru þau mikilvægur hlekkur í keðjunni,” sagði Ásmundur að lokum.“ 👇