Valdefling er einstaklingsmiðað batahvetjandi kerfi, byggt á trausti og virðingu, og mótað af notanda í samvinnu við fagmenn, hér er stutt sýnishorn úr valdeflingartíma Hugarafls.
Frelsi – Bati – Valdefling
smelltu hér til að horfa á myndbandið
Valdeflingarpunktarnir 15
1. Að hafa vald til að taka ákvarðanir.
2. Að hafa aðgang að upplýsingum og úrræðum.
3. Að hafa næga valkosti (ekki bara já/nei, annað hvort/eða).
4. Að efla ákveðni
5. Að vekja væntingar um að einstaklingurinn geti haft áhrif (að vera vongóður).
6. Að læra að hugsa á gagnrýninn hátt, að komast upp úr hjólförunum, að sjá hluti á annan hátt, t.d.
- Að læra að endurskilgreina hver við erum (að tala með eigin rödd).
- Að læra að endurskilgreina hvað við getum gert.
- Að læra að endurskilgreina sambönd okkar við stofnanavöld.