Starfsfólk Hugarafls eflir færni sína í sjálfsvígsforvörnum

Föstudaginn 13. nóvember luku fjórir starfsmenn Hugarafls, Grétar Björnsson, Alexander Steingrímsson, Fjóla Kristín Ólafardóttir og Rakel Björk Haraldsdóttir, námskeiði í sjálfsvígsforvörnum á vegum Lífsbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna.
Námskeiðið miðar að því að efla þekkingu, færni og öryggi þátttakenda í að mæta einstaklingum sem glíma við sjálfsvígshugsanir, eiga við þá samtal og veita viðeigandi stuðning.
Í starfi Hugarafls leggjum við mikla áherslu á mannleg tengsl, virka hlustun og að skapa öruggt rými þar sem fólk getur tjáð sig um líðan sína og reynslu. Stöðug þekkingaröflun og færniþróun starfsfólks er mikilvægur þáttur í því að efla starfið og mæta fjölbreyttum þörfum fólks.
Við óskum samstarfsfólki okkar innilega til hamingju með þennan áfanga og þökkum Lífsbrú fyrir mikilvægt framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi.


