Iðjuþjálfanemar í heimsókn hjá Hugarafli

Í byrjun nóvember tókum við á móti þremur iðjuþjálfanemum, þeim Margréti Ágústu Jóhannsdóttur, Kristrúnu Guðnaðardóttur og Kristjáni Egilssyni, sem vörðu fjórum dögum í að kynnast starfsemi og hugmyndafræði Hugarafls.
Nemendurnir tóku virkan þátt í dagskrá Hugarafls og fengu innsýn í hvernig batamiðuð nálgun birtist í daglegu starfi okkar.
Okkur þykir mikilvægt að skapa tækifæri fyrir verðandi fagfólk til að kynnast ólíkum nálgunum á geðheilbrigði og mikilvægi þess að reynsluþekking fái að njóta sín. Heimsóknir sem þessar skapa dýrmætt rými fyrir samtal, gagnkvæman lærdóm og miðlun reynslu.
Það var okkur ánægja að fá að deila með nemendunum reynslu okkar og hugmyndafræði um bata, valdeflingu og mikilvægi mannlegra tengsla.
Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna, áhugann og þátttökuna og óskum þeim alls hins besta í áframhaldandi námi og starfi.


