Close-up of a scientist holding a tray of petri dishes with purple cultures, wearing gloves and safety gear.

Hvað er Hugarafl?

Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum.

Við erum stærstu grasrótarsamtök fólks með andlegar áskoranir á Íslandi og látum rödd okkar heyrast varðandi geðheilbrigðismál. Félagið var stofnað árið 2003.

Starfsemi

Starfsemi Hugarafls er mótuð bæði af einstaklingum með persónulega reynslu af andlegum áskorunum (stundum kallað notendur) og einstaklingum með fagmenntun. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er fyrir öll, 18 ára og eldri, sem hafa áhuga á að vinna í geðheilsu sinni á eigin forsendum. Starfsemin er algjörlega gjaldfrjáls, óháð búsetu og engin krafa er gerð um tilvísanir né geðsjúkdómagreiningar.

Umhverfi

Við leggjum okkur fram um að skapa umhverfi sem ýtir undir valdeflingu og bata einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum og fjölskyldur þeirra. Sérstaða Hugarafls er einstaklingsmiðuð nálgun sem og samvinna fólks sem tekist hefur á við andlegar áskoranir og fagfólks. Við vinnum saman sem jafningjar, tökum sameiginlegar ákvarðanir um starfsemi Hugarafls og erum hvött til að láta í ljós skoðanir okkar. Við berum sameiginlega ábyrgð á hópastarfi, verkefnum og dagskrá Hugarafls.

Hugmyndafræðin

Allt starf Hugarafls byggist á hugmyndafræði valdeflingar sem mótuð var af Judi Chamberlin sem og batahugmyndafræði Daniels Fishers. Þetta er ekki einungis leiðarljós starfseminnar heldur nýtast fræðin sem grundvöllur í daglegu starfi Hugarafls og sjálfsvinnu einstaklinga. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er á forsendum hvers og eins. Við virðum sjálfræði hvers og eins til að móta sína bataleið.

Starfsemin

Starfsemin

Starfsemin

Valdefling

Í valdeflingu felst að vera við stjórnvölinn í eigin lífi. Valdefling byggir á sjálfsvinnu og getunni til að hafa áhrif út fyrir okkur sjálf.

Bati

Raunverulegur bati er mögulegur. Það er alltaf von. Við skilgreinum hvað felst í okkar bata sjálf. Þegar við höfum náð bata tekur „hefðbundið“ líf við með eðlilegum sveiflum og áskorunum. Sammannleg þörf okkar allra er að hlúa að eigin líkamlegri og andlegri heilsu.

Samtöl

Jafningjagrundvöllur næst þegar fagmenn og einstaklingar með persónulega reynslu tala saman og starfa sem jafningjar. Við metum reynslu þessara tveggja hópa til jafns. Einstaklingurinn sjálfur er ávallt sérfræðingur í eigin lífi.

Orðalag

Við höfum kosið að tala um andlegar áskoranir í stað „andlegra veikinda“, „geðsjúkdóma“ og annars orðalags sem kemur úr hefðbundnu læknisfræðilegu líkani. Við trúum því að andlegar áskoranir eigi rætur að rekja til samspils lífssögu, áfalla, umhverfis og skorts á félagslegum stuðningi. Einstaklingur getur gengið í gegnum tilfinningalega krísu og uppfyllt greiningarskilmála en að sama skapi náð bata og lifað góðu lífi.

Mannréttindi

Hugarafl stendur vörð um mannréttindi einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum. Við lítum svo á að það séu sjálfsögð réttindi að ekkert sé ákveðið sem snertir málaflokk þessara einstaklinga án þeirra aðkomu. Við eigum rétt á aðgengi að upplýsingum, fjölbreyttum valmöguleikum og upplýstri ákvarðanatöku í eigin sjálfsvinnu.

Hafa samband

Hafa samband

Hafa samband

Hvort sem þú ert að leita að stuðningi, fræðslu eða vilt kynna þér starfsemi Hugarafls, þá erum við hér til að hlusta. Sendu okkur línu og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Modern office interior with glass walls, wooden accents, and a person walking up a staircase in motion blur.

Nánari upplýsingar