Í Hugarafli er jafningjastuðningur einn af hornsteinum starfseminnar. Jafningjastuðningur felst í því að einstaklingar sem hafa sjálfir gengið í gegnum andlegar áskoranir og bataferli styðji við aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref eða eru styttra á veg komnir í eigin bata. Stuðningurinn byggir á tengslum, gagnkvæmri virðingu og þeirri einstöku þekkingu sem verður til í gegnum lifaða reynslu.
Jafningjastuðningur er ekki meðferð heldur stuðningur sem byggir á jafningjagrunni. Sá sem sækir stuðning hittir manneskju sem hefur upplifað svipaðar áskoranir og getur því oft skilið flóknar tilfinningar og reynslu á annan hátt en hefðbundin þjónusta gerir ráð fyrir. Sá sem veitir stuðninginn fær á sama tíma tækifæri til að nýta eigin reynslu á uppbyggilegan hátt og gefa henni merkingu.
Jafningjastuðningur snýst fyrst og fremst um að hlusta, skapa öruggt rými og mæta einstaklingum án dóma. Hann snýst ekki um að segja fólki hvað það eigi að gera, heldur um að deila reynslu, sýna samkennd og styðja fólk í að finna sínar eigin leiðir áfram.
Reglulega eru haldin jafningjastuðningsnámskeið í húsinu þar sem þátttakendur kynnast hugmyndafræði Hugarafls, grunngildum jafningjastuðnings og hlutverki jafningja í bataferli annarra. Þjálfarar námskeiðanna eru vottaðir jafningjaþjálfarar með alþjóðleg réttindi frá Herstel Talent í Hollandi.
Á námskeiðinu er farið yfir sögu jafningjastuðnings í Hugarafli, hlutverk, mörk og ábyrgð jafningja. Þátttakendur vinna jafnframt með eigin lífssögu og reynslu með það að markmiði að greina styrkleika sína, sigra og þann mannauð sem felst í lifaðri reynslu. Námskeiðið býður upp á djúpa sjálfsskoðun og undirbúning fyrir það mikilvæga hlutverk að styðja aðra á jafningjagrunni.




