Hugmyndafræði Hugarafls

Valdefling, bati og jafningjagrundvöllur

Alþjóðlegt samstarf frá fyrsta degi.
Hugmyndafræði Hugarafls

Valdefling, bati og jafningjagrundvöllur
Sjálfsvinna í samfélagi
Allt starf Hugarafls byggir á hugmyndafræði valdeflingar sem mótuð var af Judi Chamberlin sem og batahugmyndafræði Daniel Fisher. Þetta er ekki einungis leiðarljós starfseminnar heldur nýtast fræðin sem grundvöllur í daglegu starfi Hugarafls og sjálfsvinnu einstaklinga. Sérstaða Hugarafls er einstaklingsmiðuð nálgun sem og samvinna fólks sem tekist hefur á við andlegar áskoranir og fagfólks. Við vinnum saman sem jafningjar, tökum sameiginlegar ákvarðanir um starfsemi Hugarafls og erum hvött til að láta í ljós skoðanir okkar. Við berum sameiginlega ábyrgð á hópastarfi, verkefnum og dagskrá Hugarafls. Þátttaka í starfsemi Hugarafls er á forsendum hvers og eins. Við virðum sjálfræði hvers og eins til að móta sína bataleið.

Valdefling - Vinnuskilgreining Judi Chamberlin
Hugmyndafræði valdeflingar kemur upphaflega frá baráttukonunni og aðgerðarsinnanum Judi Chamberlin. Hún hafði lengi barist fyrir réttindum einstaklinga með geðraskanir í Bandaríkjunum og gaf meðal annars út bókina On our own árið 1978. Skilgreining Judi á valdeflingu og rannsóknir hennar á hvað þurfi að vera til staðar svo þjónusta geti talist valdeflandi eru fyrirmyndin af starfinu í Hugarafli. Judi kom í heimsókn til Íslands árið 2006 og hélt tveggja daga vinnusmiðju á vegum Hugarafls.

Valdeflingarpunktarnir 15
Árið 1997 birti Judi grein með vinnuskilgreiningu á valdeflingar-hugtakinu (e. empowerment). Orðið „valdefling“ hafði þá verið notað víða en í ólíkum tilgangi og vöntun var á sameiginlegri skilgreiningu. Judi vann vinnuskilgreiningu á valdeflingarhugtakinu í samstarfi við fjölda annarra einstaklinga með persónulega reynslu af andlegum áskorunum. Afrakstur vinnu þeirra reyndist vera 15 ólíkir punktar sem hver um sig útskýrir eina vídd valdeflingar. Hver punktur hefur nánari skýringu frá hópnum sem vann að þessum skilgreiningum.
Born from the collective ambition of industry veterans and technology innovators, our mission is to expedite the journey of groundbreaking healthcare solutions from conception to global markets.
01
Að hafa vald til að taka ákvarðanir.
02
Að hafa aðgang að upplýsingum og úrræðum.
03
Að hafa næga valkosti (ekki bara já/nei, annað hvort/eða).
04
Að efla ákveðni.
05
Að vekja væntingar um að einstaklingurinn geti haft áhrif (að vera vongóður).
06
Að læra að hugsa á gagnrýninn hátt, að komast upp úr hjólförunum, að sjá hluti á annan hátt.
07
Að læra um reiði og láta hana í ljósi.
08
Að finnast maður ekki vera einn, finnast maður vera hluti af hópi.
09
Að skilja að fólk hefur réttindi.
10
Að hafa áhrif á breytingar í eigin lífi og eigin samfélagi.
11
Að tileinka sér nýja hæfileika sem einstaklingurinn telur mikilvæga.
12
Að breyta skynjun annarra á eigin hæfni og getu til athafna.
13
Að koma út úr skápnum.
14
Að einstaklingurinn stuðli sjálfur að viðvarandi þroska og breytingum.
15
Að efla jákvæða sjálfsmynd og vinna bug á fordómum.
Líkt og sjá má á valdeflingarpunktunum 15 felur valdefling ekki eingöngu í sér sjálfseflingu heldur er mikilvægt að skoða, endurskoða og vinna með tengsl við samfélagið, félagslega vídd og finna að við getum haft áhrif á umhverfi okkar.
Bati
Raunverulegur bati er mögulegur. Það er alltaf von. Við skilgreinum hvað felst í okkar bata sjálf.
Our strategic funding connection process involves a meticulous evaluation of each project to ensure it aligns with our investors' goals for societal impact and financial return.
Valdefling
Strategic Funding
Í valdeflingu felst að vera við stjórnvölinn í eigin lífi. Valdefling byggir á sjálfsvinnu og getunni til að hafa áhrif út fyrir okkur sjálf.
Our strategic funding connection process involves a meticulous evaluation of each project to ensure it aligns with our investors' goals for societal impact and financial return.
Jafningjastuðningur
Strategic Funding
Við fáum að bæta starf okkar í félaginu með því að læra saman og búa til ný tæki og aðferðir til að ná bata.
Our strategic funding connection process involves a meticulous evaluation of each project to ensure it aligns with our investors' goals for societal impact and financial return.
Batahugmyndafræði Daniel B. Fisher
Geðlæknirinn Daniel B. Fisher er annar öflugur málsvari valdeflingar og starfaði með Judi í Boston þar til hún lést 2010. Þau voru miklir vinir og Judi var mentor Dan í valdeflingu. Fisher lauk prófi frá Harvard Medical háskólanum eftir að hann náði bata af geðklofa og er einn af fáum geðlæknum í heiminum sem talar opinberlega um reynslu sína af geðsjúkdómum. Fisher er höfundur af eCPR (andlegu hjartahnoði) og PACE batamódelinu sem Hugarafl hefur nýtt í sinni þjónustu til margra ára. Meðhöfundur Dan að PACE var Laurie Ahern aðstoðarframkvæmdastjóri Empowerment Center. Daniel Fisher er framkvæmdastjóri Empowerment Center og hefur margsinnis komið til Íslands á vegum Hugarafls og haldið hér fyrirlestra, námskeið og vinnusmiðjur ásamt því að miðla sögu sinni og reynslu til að efla batamiðaða nálgun hér á landi.

Líkön um bata
Kynntu þér þrjú sjónræn líkön sem varpa ljósi á bata, valdeflingu og tengsl.

PACE Batamódelið
Sjónræn yfirsýn yfir tengsl bata, heilunar og þroska. Sett saman af Daniel Fisher og Laurie Ahern.

Heartbeats of Hope módel
Uppfært módel úr bók Daniel Fisher „Heartbeats of Hope“.

Batamódelið úr batatímum
Stutt leið inn í líkanið og ítarlega umfjöllun þess. Kennt í batatímum í Hugarafli.

PACE batamódelið
Daniel Fisher og Laurie Ahern gáfu út svk. Empowerment Model of Recovery árið 1999. Módelið setur fram myndræna framsetningu á því þegar einstaklingur er skilgreindur geðveikur og nær bata. Þegar Hugarafl var stofnað árið 2003 var batahugmyndafræðin enn ný af nálinni og starfsemin byggði á líkani Fishers. Taka ber fram að orðalag þessa líkans hefur nú verið uppfært og Fisher talar einnig sjálfur um „recovery paradigm“ sem þýða mætti sem batahugmyndafræði í stað líkans. Lykilatriði batahugmyndafræðinnar hafa þó ekki breyst. Í grunninn mætti segja að andlegar áskoranir megi rekja til áfalla, missis, skorts á nægjanlegum félagslegum tengslum, stuðningi og þeirri tilfinningu að þú tilheyrir samfélaginu. Andlegar áskoranir eru eðlileg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum. Við göngum í gegnum tilfinningalegt rót í kjölfar erfiðrar upplifunar og getum misst stjórn á eigin lífi í kjölfarið. Í þeim aðstæðum uppfyllum við mögulega greiningarskilmála fyrir svk. „geðsjúkdóma“ og fáum stimpil. Það er hægt að ná bata af andlegum áskorunum, þær eru ekki komnar til að vera. Það er mikilvægt að miðla von um batann og ítreka það að hvert og eitt okkar skilgreinir hvað felst í okkar bata sjálf. Einstaklingar geta náð bata hvort sem þeir upplifi enn einhver merki vanlíðanar eður ei. Batavegferðin er mismunandi fyrir hvern og einn en felur gjarnan í sér aukna valdeflingu, tilfinninguna að vera við stjórnvölinn í eigin lífi, aukin tengsl við samfélagið og félagslegan stuðning og að vinna úr þeirri lífsreynslu sem við höfum gengið í gegnum. Eftir að við höfum náð bata tekur hefðbundið líf við með venjubundnum sveiflum upp og niður í daglegri líðan.

Jafningjagrundvöllur
Jafningjagrundvöllur næst þegar fagmenn og einstaklingar með persónulega reynslu af andlegum áskorunum tala saman og starfa sem jafningjar. Við metum reynslu þessara tveggja hópa til jafns. Einstaklingurinn sjálfur er ávallt sérfræðingur í eigin lífi. Atriði til að hafa í huga til að meta hvort jafningjagrundvöllur sé til staðar: - Er starfsfólk sérstaklega merkt eða klætt öðruvísi, t.d. í hvítum sloppum eða með nafnspjöld? - Er beðið með að hefja fund þangað til einhver ákveðinn aðili mætir á fundinn, t.d. forstöðumaður, formaður eða læknir, jafnvel þó meirihluti fundargesta sé mættur? - Hafa öll jafnt vægi með ákvarðanatöku? Er tekið mark á skoðunum allra og eru öll viðstödd með atkvæðarétt? - Eru sérmerkt salerni og kaffiaðstaða eingöngu fyrir starfsmenn/fagfólk?

Hafa samband
Hafa samband
Hafa samband
Hvort sem þú ert að leita að stuðningi, fræðslu eða vilt kynna þér starfsemi Hugarafls, þá erum við hér til að hlusta. Sendu okkur línu og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Nánari upplýsingar
Heimilisfang
Netfang
Símanúmer