Hugarafl mætir á fyrsta fund New Nordic Dialogue Alliance í Eistlandi

21.11.26

Dagana 16.-17. nóvember komu saman í Tallinn sérfræðingar og iðkendur samræðu-og samtalsaðferðferða frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum á fyrsta fundi New Nordic Dialogue Alliance. Markmið fundarins var að finna sameiginlegan grundvöll og stíga fyrstu skrefin að gerð sameiginslegs vegvísis um framtíð samræðumenningar á svæðinu. Þátttakendur komu frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Íslandi.

Grétar Björnsson formaður Hugarafls var annar af tveim fulltrúum Íslands. Hann kynnti starf Hugarfls og sagði frá hvernig samtökin hafa í áratugi unnið með fjölskyldum og einstaklingum með geðrænum vanda og nýtt sér aðferðir Open Dialog við það verkefni.

Grétar hitti þar breiðan hóp kollega frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum og kynntist því hvernig samræðuaðferðir nýtast á fjölbreyttum vettvangi til þess að bæta samfélögin okkar. Mikið var rætt um að auka samstarf og standa vörð um Norræna lífshætti og gildi sem byggja á lýðræði, þátttöku og virðingu fyrir mannréttindum.

Stríðið í Úkraínu, gervigreindin og ólga í alþjóðasamfélaginu setti svip sinn á umræður en ljóst er að það er mikilvægt fyrir norðurlöndin og standa þétt saman á tímum mikilla samfélagsbreytinga. Hugarafl er stolt yfir því að eiga sæti við borðið fyrir hönd Íslands og við munum deila okkar þekkingu á Open Dialogue til samstarfsins en gildin sem talað var um að vaðveita samræmast þeim gildum Hugarafls og Open Dialogue aðferðarinnar.


1 / 6

Í d

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar