Hugarafl hlýtur fjögurra milljóna króna styrk frá Landsbankanum

Frá vinstri: Þorsteinn Stefánsson, Magnús Freyr Magnússon, Auður Axelsdóttir og Árni Þór Þorbjörnsson.
Hugarafl hefur hlotið fjögurra milljóna króna styrk frá Landsbankanum í nafni þeirra 1.218 fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Á hverju ári veitir Landsbankinn styrk til góðs málefnis í nafni fyrirtækjanna og í ár varð Hugarafl fyrir valinu.
Við í Hugarafli tökum á móti þessum styrk með miklu þakklæti. Í honum felst bæði mikilvægur stuðningur við starfsemi okkar og dýrmæt viðurkenning á mikilvægi grasrótarstarfs á sviði geðheilbrigðis.
Frá stofnun Hugarafls árið 2003 höfum við unnið að því að skapa samfélag þar sem fólk fær tækifæri til að vinna að eigin bata, efla sjálfsforræði sitt og lifa innihaldsríku lífi á eigin forsendum. Starf okkar byggir á von, heilun, valdeflingu og tengslum.
Stuðningur af þessu tagi er okkur afar dýrmætur og gerir okkur kleift að halda áfram að efla og þróa starfið.
Við færum Landsbankanum og framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2026 okkar innilegustu þakkir fyrir stuðninginn og það traust sem okkur er sýnt.


