Elín Salka kynnir nýjan vettvang fyrir mannleg tengsl

30.10.26

Elín Salka Einarsdóttir heimsótti Hugarafl í dag og kynnti spennandi verkefni sem hún vinnur að undir nafninu Panikk. Um er að ræða nýjan vefvettvang sem hefur það að markmiði að vinna gegn einmanaleika og félagslegri einangrun, efla geðheilsu og skapa tækifæri fyrir fólk til að mynda raunveruleg tengsl.

Á vefsíðunni verða meðal annars birtir pistlar og fréttir tengdar lýðheilsu, en þungamiðja verkefnisins verður rauntímaspjall þar sem fólk getur komið saman, átt samtöl og myndað tengsl í öruggu umhverfi. Sérstök áhersla verður lögð á að ná til einstaklinga sem eiga erfitt með að taka þátt í félagslífi, hitta annað fólk eða eiga samskipti í síma.

Sjálfboðaliðar munu taka þátt í samtölum og stuðla að því að spjallið verði öruggur og uppbyggilegur vettvangur fyrir alla.

Til framtíðar er einnig gert ráð fyrir áfengislausum viðburðum og hittingum þar sem þátttakendur geta, ef þeir kjósa, tekið næsta skref og hist augliti til auglitis.

Hugmyndin á sér persónulegar rætur hjá Sölku, sem kynntist einni sinni nánustu vinkonu á netspjalli fyrir um 20 árum. Sú vinátta hefur haldist æ síðan og er henni hvatning til að skapa sambærileg tækifæri fyrir aðra.

Hugarafl og Salka hafa ákveðið að hefja samstarf um verkefnið. Markmið þess falla vel að hugmyndafræði Hugarafls þar sem mannleg tengsl, jafningjastuðningur, valdefling og samfélagsleg þátttaka skipa mikilvægan sess.

Við þökkum Sölku kærlega fyrir heimsóknina og hlökkum til samstarfsins!

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar