Samtalið hafið við TR

10.09.26

Undanfarna mánuði höfum við hjá Hugarafli unnið að því að aðlagast nýju landslagi hvað varðar örorku- og endurhæfingarmál á okkar vinnustað og hjá okkar skjólstæðingum. Við sóttum að sjálfsögðu námskeið hjá Tryggingastofnun haustið 2025 og bundum ríkar vonir við breytingarnar.

Það hefur hins vegar reynst flókin vegferð fyrir fagteymið að fóta okkur í nýjum veruleika og fyrir því eru margar ástæður. Við fáum svör frá TR sem við þekkjum ekki og samræmast ekki ferlinu hjá notandanum, þrátt fyrir árangur virðist oft vísað annað og gefið í skyn að endurhæfing hjá Hugarafli sé ekki næg, það er erfitt að ná samtali þegar synjun hefur borist, svör eru fáleg og fleira mætti nefna. Einstaklingum á lokaspretti endurhæfingar er jafnvel vísað inn í heilbrigðiskerfið en eðli málsins samkvæmt er það ekki heilsufarsvandi sem er stýrandi þegar ljúka á endurhæfingu. Það er búið að vinna með heilsufarsvandann og endurhæfingin byggir á þátttöku og virkni til að geta farið á ný út í samfélagið. Okkur virðist sem það vanti færni til að sjá framvindu í endurhæfingu og skilning á því að ferlið getur tekið langan tíma. Það er mikilvægt að fá að vinna upp starfsgetu á þeim hraða sem hentar notandanum, að notandinn fái tíma til að byggja upp færni og getu til þess að skrefið út á vinnumarkað geti tekist.

Þessar aðstæður eru vel að merkja erfiðastar fyrir notandann sjálfan og notendur upplifa sig raddlaus og réttindalaus. Það er fátt um svör og oft bent á að notandinn geti beðið um rökstuðning eða kært til úrskurðarnefndar. Þetta eru sannarlegar réttar ábendingar en hafa verður í huga að einstaklingur sem hefur fengið ítrekaða höfnun hefur ekki þrek eða baráttu hug til að leita endurtekið svara.

Við sendum okkar athugasemdir á forsvarsmenn TR og fengum samtal sem hófst þann 8.september og mun halda áfram. Við teljum mjög brýnt að ræða þessi mál og við viljum ítreka að hér er um líf fólks og lífsgæði að ræða sem má ekki stöðva með rökum sem standast ekki. Það verður að taka samtalið og efla mannúðina, við getum ekki gert stórar lagabreytingar sem koma niður á réttindum þeirra sem á þurfa að halda.

Hugarafl rekur mjög öfluga endurhæfingu og hefur gert undanfarin 23 ár og við viljum að á okkur sé hlustað þegar kemur að því að styðja einstaklinga til virkni og aukinnar samfélagsþátttöku. Breytingar mega ekki vera breytinganna vegna og ef þær koma niður á réttindum þeirra sem leita inn í endurhæfingu eða þurfa á örorku að halda, er betra heima setið en af stað farið.

Fundurinn með forsvars fólki endurhæfingar- og örorkulífeyris gekk vel. Fundurinn var krefjandi, farið var yfir okkar athugasemdir og áleitnar spurningar. Forsvarsfólk TR stakk uppá að samtalið myndi halda áfram og það var að finna vilja þeirra til að bæta úr erfiðum aðstæðum okkar notenda og jafnframt vilja til að efla gott samstarf við Hugarafl.


Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar