Auður Axelsdóttir í viðtali á Samstöðinni

Við mælum svo sannarlega með þessu viðtali við Auði Axelsdóttur hjá Samstöðinni.

Í einlægu og kraftmiklu samtali talar Auður við Björn Þorláksson um hugsjónina sem hefur verið leiðarljós Hugarafls frá upphafi – að mæta manneskjunni þar sem hún er, í augnhæð og af virðingu, og horfa á geðræna þjáningu í samhengi við líf hennar og reynslu.

Hún ræðir sjálfsvígsforvarnir, sjúkdómsvæðingu geðrænnar þjáningar, geðlyf og upplýst samþykki, mikilvægi samtals, tengsla og umhyggju og þörfina fyrir hugrekki til að hugsa geðheilbrigðisþjónustu upp á nýtt.

Auður segir frá því hvernig Hugarafl varð til úr hópi fólks sem ákvað að láta ekki við stöðuna una – hópi sem „skipulagði byltingu“ og ætlaði sér að hafa áhrif á íslenska geðheilbrigðiskerfið.

Sú bylting stendur enn yfir.

Í meira en tvo áratugi hefur Hugarafl talað fyrir valdeflingu, bata, jafningjagrunni og því að reynsla fólks sem notar geðheilbrigðisþjónustu hafi raunverulegt vægi. Kjarninn hefur þó alltaf verið sá sami: manneskjan sjálf, saga hennar, tengslin, vonin og trúin á að breyting sé möguleg.

„Það skiptir máli að hafa gott fólk sem er tilbúið til að gera breytingar og hefur kjark til þess.“

Við hvetjum ykkur til að gefa ykkur tíma í þetta mikilvæga samtal.

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar