
Niðurstöður um virðisgildi Hugarafls kynntar
Written by
Fréttir
5/13/26
4 mín

Á morgunfundi Hugarafls miðvikudaginn 13. maí voru kynntar niðurstöður nýrrar skýrslu hagfræðingsins Gunnars Úlfarssonar um virðisgildi starfsemi Hugarafls. Í skýrslunni er metinn samfélagslegur og opinber ávinningur af starfsemi Hugarafls, meðal annars út frá aukinni virkni, bættri andlegri heilsu og minni kostnað fyrir hið opinbera.
Við erum afar þakklát fyrir þessa mikilvægu vinnu og þann sýnilega vitnisburð sem hún gefur um áhrif og mikilvægi batamiðaðrar jafningjanálgunar í samfélaginu.
Sjá upptöku af morgunfundinum:






