Viðreisn úr Reykjavík og Mosfellsbæ heimsækir Hugarafl

Góðir gestir heimsóttu Hugarafl í dag í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Grétar Björnsson og Rakel Björk Haraldsdóttir voru gestgjafar dagsins.

5/5/26

Við kynntum starf okkar og hugmyndafræði valdeflingar og bata, kynntum gildi grasrótarinnar og mikilvægi opins úrræðis þegar leitað er aðstoðar vegna geðrænna áskorana. Við ræddum einnig stækkandi hlutverk Hugarafls í samfélagi okkar og gríðarlega eftirspurn. Kynnt var að 86% þeirra sem leita til Hugarafls líður mjög illa í við komu í Hugarafl en eftir dvöl í Hugarafli lækkar þessi prósenta niður í ríflega 20% sem verður að teljast mjög mikill árangur. Frambjóðendur Viðreisnar í Reykjavík Róbert Ragnarsson og Margrét Rós Sigurjónsdóttir hlustuðu vel og sýndu málaflokknum mikinn áhuga og virðingu. Sama má segja um fulltrúa Viðreisnar úr Mosfellsbæ Berglind Róbertsson Grétarsdóttir. Samtalið við þessa góðu fulltrúa var gott og gefandi.

Þökkum innilega góðum gestum fyrir komuna. Það er alltaf byr í seglin að finna einlægan áhuga, skilning og virðingu

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar