Fræðsla um gerð ferilskrár fyrir endurhæfingarhóp C
3/27/26
C hópur í endurhæfingu hjá Hugarafli undirbýr af krafti endurkomu á vinnumarkað. Í dag fengum við góðan gest; Sigurð Tómas Björgvinsson sem kom til okkar og leiðbeindi og fræddi um gerð ferilskrár. Frábær og gefandi tími fyrir alla þátttakendur. Það er mikilvægt að fá hvatningu eins og Sigurður Tómas veitti hópnum og von um að geta gert nauðsynlegar breytingar.
Það eru stór skref að stíga aftur út á vinnumarkað að lokinni endurhæfingu. Öll færni og lífssaga/vinnusaga hefur verið skoðuð og ígrunduð. Það er aðdáunarvert að fylgjast með kjarkinum, viljanum og seiglunni sem hópurinn býr yfir.





