
Maria Ingström í samtali við Auði Axels | Open Dialogue Meeting 2026
07.09.26
Í þessu einlæga og áhrifamikla samtali ræðir Auður Axelsdóttir, stofnandi Hugarafls, við sænska lækninn og rithöfundinn Maria Ingström um óvenjulega lífsreynslu hennar – frá því að vera læknanemi, yfir í að verða sjúklingur innan geðheilbrigðiskerfisins og síðar aftur til starfa sem læknir.
Maria var 25 ára og á síðasta ári í læknanámi þegar hún upplifði breytt meðvitundarástand sem var greint sem geðrof. Hún var lögð inn gegn vilja sínum og upplifði meðal annars langvarandi þvinganir, mikla lyfjagjöf og raflostmeðferð. Í samtalinu lýsir hún ekki aðeins reynslunni af geðrofinu sjálfu heldur einnig þeim djúpstæðu áhrifum sem meðferðin innan geðheilbrigðiskerfisins hafði á hana.
Maria og Auður ræða meðal annars þvinganir og mannréttindi í geðheilbrigðisþjónustu, mikilvægi þess að hlusta á lífssögu fólks, hlutverk fjölskyldu og tengsla í bata, geðlyf og niðurtröppun þeirra og hvað gerist þegar greiningin verður mikilvægari en manneskjan og samhengi hennar.
Maria segir jafnframt frá því sem hjálpaði henni að finna leiðina til baka – fjölskyldunni, tengslunum við annað fólk, því að vera séð sem sú manneskja sem hún var en ekki sem sjúkdómsgreining og því að eiga sér líf, tilgang og sjálfsmynd til að snúa aftur til.
Í dag er Maria sérfræðingur í heimilislækningum og höfundur verðlaunabókarinnar Restrained: A Doctor’s Journey Through Psychosis, Recovery, and the Search for Compassionate Care. Reynsla hennar beggja vegna geðheilbrigðiskerfisins hefur orðið til þess að hún berst fyrir mannúðlegri geðheilbrigðisþjónustu þar sem mannréttindi, tengsl og bati eru í forgrunni.


