Hugarafl hlýtur viðurkenningu Lífsbrúar fyrir framlag til sjálfsvígsforvarna

Hugarafl hlaut í dag viðurkenningu Lífsbrúar fyrir framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi. Viðurkenningin var afhent við formlega opnun Guls september í Háskólanum í Reykjavík.
Viðurkenningar Lífsbrúar eru veittar einstaklingi og liðsheild fyrir mikilsvert framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi, fyrir að auka þekkingu á málefninu og stuðla að bættri heilsu og líðan landsmanna. Hugarafl hlaut viðurkenningu fyrir framlag liðsheildar en Högni Óskarsson geðlæknir hlaut viðurkenningu fyrir einstaklingsframtak.
Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, tók við viðurkenningunni fyrir hönd félagsins og þakkaði fyrir hana með orðum sem fanga vel hugsjónina að baki starfi Hugarafls.
Hún sagði rennihurðina í Hugarafli vera sérstakan stað í húsinu. Þar komi stundum inn einstaklingar sem séu að leita sér hjálpar í síðasta skiptið. Hugsjón Hugarafls sé að grípa þau sem koma inn um þessa hurð og bjóða þau velkomin inn í samfélag sem er valdeflandi.
„Það að tilheyra skiptir sköpum og bjargar mannslífum.“
Við opnun Guls september hélt Edda Björgvinsdóttir leikkona áhrifamikla ræðu um sorgina. Tónlistarhópurinn KASI flutti jafnframt lagið Tilfinningar gleymast, sem samið var um vin sem lést í sjálfsvígi. Flutningurinn hreyfði djúpt við viðstöddum og minnti með sterkum hætti á manneskjurnar og sögurnar að baki þeirri mikilvægu vinnu sem Gulur september stendur fyrir.
Alma Möller heilbrigðisráðherra ávarpaði einnig gesti og virkjaði við tilefnið nýtt fjögurra stafa hjálparsímanúmer Píeta samtakanna, 1799, sem auðveldar fólki að leita sér aðstoðar þegar á þarf að halda.
Hugsjón Hugarafls hefur frá upphafi verið að skapa samfélag þar sem einstaklingar geta mætt eins og þeir eru, þar sem reynsla þeirra er virt og þar sem von, valdefling og tengsl eru í fyrirrúmi. Samfélag þar sem fólk tilheyrir.
Það er Hugarafli mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu. Við þökkum Lífsbrú kærlega fyrir hana og öllum þeim sem hafa í gegnum árin tekið þátt í að skapa það samfélag sem Hugarafl er.



