Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna

Magnað starf Karlahópsins í Hugarafli til umfjöllunar í Vísi.

Einlægt og tæpitungulaust viðtal við frumkvöðul og stofnanda hópsins Grétar Björnsson og nokkra þátttakendur. Í húsi Hugarafls er árangur þessa hópastarfs áþreifanlegur. Að hafa vettvang og rödd til að setja orð á lífssöguna, áföllin og batann í öruggu umhverfi er ómetanlegt og breytir lífinu.

Að viðhalda góðri geðheilsu er ein stærsta áskorunin í nútíma samfélagi. Gildi Hugarafls, bati, valdefling og jafningjagrundvöllur ættu að vera leiðarljósið í vegferð að betri geðheilsu. Stefnumótun í geðheilbrigðismálum ætti að taka mið af árangri sem þessum í allri mótun þjónustu sem miðar að því að styðja einstaklinga til bata og valdeflingar í lífi sínu.

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar