Heimsókn í Batatíma hjá Hugarafli
5/19/26
Batatímarnir hjá Hugarafli nálgast kraftaverk. Þar fer fram opið samtal um batann og leiðir, vegferðina að bata, reynslunni er deilt og hún rædd frá öllum hliðum. Að svona stór hópur sæki fundina viku eftir viku og sitji í stórum sal er klárlega vitnisburður um kjarkinn sem hver og einn Hugarafls maður hefur. Kjarkur til að fara inná við, skoða hvað megi endurskoða, hverju megi breyta og hvernig megi lifa þrátt fyrir afleiðingar áfalla. Hvernig megi finna reynslunni farveg og breyta framtíðinni. Ég er djúpt snortin.
Í dag leiddu Gretar Bjornsson og Sigrún Huld stundina, deildu reynslu sinni og þekkingu af batanum og lífsgæðunum sem geta áunnist þegar farið í þessa vegferð til að öðlast betra líf.




