Heimsókn til geðheilsu félagsfræðinema í HÍ

Hittum geðheilsu félagsfræðinema í HÍ dag. Frábær hópur og áhugasamur og stundin með þeim gefandi.

3/9/26

Gretar Bjornsson kennari HÍ fór yfir eðli streitu og áfalla, hvernig geðheilsufélagsfræðin lítur á samspil persónulegra- og samfélagslegra þátta þegar áföll verða og tekist er á við áföll. Fjóla Kristín Ólafardóttir fræddi nemendur um reynslu sína og afleiðingar áfalla á hennar lífsleið, Auður Axelsdóttir rak svo lestina með umræðu um tilhneigingu til sjúkdómsvæðingar á tilfinningum og afleiðingum áfalla. Nálgun Hugarafls var rædd og til umræðu kom einnig nálgun í Andlegu hjartahnoði og Open Dialogue.

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar