Gleðidagur hjá Hugarafli.

Í dag var skrifað undir nýjan samning við Hugarafl af Willum Þór heilbrigðisráðherra. Þetta eru mikil tímamót og það er sannarlega fagnað í Hugarafli í dag.

21.11.24

Samningurinn er tilraunaverkefni og kveður á um aukna áherslu hjá Hugarafli á endurhæfingu og starfsendurhæfingu hjá samtökunum. Hugarafl hefur sinnt endurhæfingu í tæp 22 ár og reynslan er gríðarleg sem byggt er á hér og árangur góður. Hugarafl sinnir notendum og aðstandendum af allri landsbyggðinni.

Willum ásamt stjórn og framkvæmdastjóra Hugarafls.

Samningurinn byggir á auknum stuðningi við endurhæfingu notenda sem ganga í gegnum geðrænar áskoranir. Lögð verður áhersla á þrjá hópa, þ.e. notendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í endurhæfingu, notendur sem eru lengra komin í endurhæfingu og notendur sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkað eða í nám. Þetta áhugaverða verkefni er viðbót við innra starf Hugarafls og er efling valmöguleika notenda sem ganga í gegnum geðrænar áskoranir.

Willum Þór heilbrigðisráðherra og hans samstarfsfólk hafa sýnt það í verki síðustu ár að skilningur er á mikilvægi grasrótar með áherslu á valdeflingu, bata og aukin mannréttindi.  Willum Þór hefur af alúð fylgst vel með innra og ytra starfi samtakanna og tekið þátt í ýmsum viðburðum hjá Hugarafli, svo sem opnun nýs húsnæðis og 20 ára afmæli samtakanna. Samtalið hefur alltaf verið virkt á milli heilbrigðisráðherra og Hugarafls. Willum Þór hefur oftsinnis ítrekað mikilvægi Hugarafls í íslensku samfélagi. Í gegnum samstarf við Willum Þór og hans ráðuneyti höfum við mætt virðingu og mennsku. Það er afar mikilvægt í okkar starfi að eiga gott samstarf við stjórnsýsluna sem sinnir þessum stóra og á sama tíma viðkvæma málaflokki.

Stjórn Hugarafls sendir bestu þakkir fyrir samstarfið og sendir góðar kveðjur inn í komandi vikur með áherslu á að allir aðilar hlúi að geðheilsu sinni í kosningabaráttunni.

Bestu kveðjur,

Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls.

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar