Fundur með nýju velfelferðarráði Reykjavíkurborgar
6/19/26
Síðastliðinn föstudag áttum við frábæran fund með nýju Velferðarráði Reykjavíkurborgar. Formaður nefndarinnar Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og varaformaður Róbert Ragnarsson , Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Magnea Gná Jóhannsdóttir tóku vel á móti okkur. Það var glatt á hjalla á fundinum og dagurinn afar fallegur. Hugarafl var kynnt stuttlega og árangur starfsins sömuleiðis en sérstök áhersla var lögð á skýrslu Gunnars Úlfarssonar hagfræðings um Virðisgildi Hugarafls. Þar koma fram vægast sagt góðar fréttir og ljóst að Hugarafl skilar miklum verðmætum til samfélagsins með starfi sínu. Samtökin hafa undanfarin ár sýnt ítrekað fram á magnaðan árangur sem sýnir fram á bata og valdeflingu þeirra sem sinna batavinnu sinni eða endurhæfingu hjá Hugarafli. Auk þessa sparast gríðarlegt fjármagn árlega eins og Gunnar kynnti Velferðarráði og það verður að teljast afar mikilvægar niðurstöður fyrir alla samningsaðila ríkis og borgar og annarra sveitarfélaga sem eru í samvinnu við Hugarafl. Það er ljóst að sveigjanleiki starfs okkar og þær áherslur bata, valdeflingar, mannúðar og mannréttinda sem eru okkar leiðarljós eru mikils virði og mannbætandi. Við viljum hvetja öll sem áhuga hafa að kynna sér niðurstöður Gunnars.
Þegar út í sólina var komið birtist einn af okkar bestu ljósmyndurum, Spessi og tók þessa ljómandi fallegu myndir af velmeinandi fólki.





