Fréttatilkynning frá Hugarafli – Morgunfundur með Gallup

Gallup kynnti niðurstöður nýrrar könnunar meðal félagsfólks.

26.09.25

Í morgun kynntu Ólafur Veigar Hrafnsson og Lilja María Árnadóttir, fulltrúar Gallup, niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir félagsfólk Hugarafls í byrjun sumars fyrir hagsmunaaðilum í geðheilbrigðiskerfinu og þeim aðilum sem stutt hafa starf Hugarafls í gegnum árin.

Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, og Grétar Björnsson, fræðslu- og stuðningsfulltrúi í Hugarafli, opnuðu fundinn og töluðu m.a. um hvernig það bætir gæði þjónustu okkar að framkvæma svona kannanir reglulega. 

Mikil ánægja var á meðal fundargesta með niðurstöðurnar sem sýna vel fram á mikilvægi óhefðbundinnar nálgunar í geðheilbrigðiskerfinu og greinilegt er að hugmyndafræðin sem Hugarafl starfar eftir ber góðan árangur, enda sýna niðurstöður fram á það.

Helstu niðurstöður sýna að 86,6 % þátttakenda sögðust hafa upplifað slæma líðan áður en þeir fengu aðstoð frá Hugarafli en eftir aðstoðina hafði hlutfallið lækkað í 24,5 %.

71,7% einstaklinga sögðust hafa litla trú á að komast aftur til vinnu eða í nám áður en þeir hófu þjónustu Hugarafls en eftir að fólk hóf þjónustu Hugarafls lækkaði hlutfallið í 22,1%  

72,5% einstaklinga sögðust hafa íhugað sjálfsvíg áður en leitað var til Hugarafls en 51,9% sögðust hafa íhugað sjálfsvíg eftir að leitað var til Hugarafls sem er 20,6% lækkun.

 

Hugarafl þakkar fundargestum fyrir komuna og góða áheyrn.

Hér má lesa niðurstöður könnunarinnar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar