Félagssáttmáli Hugarafls verður til
Kosið var um nýjan félagssáttmálann á félagsfundi Hugarafls 08. júlí 2026. Hann skal lesinn upp framvegis í upphafi hvers félagsfundar.
Fréttir
7/9/26
4 mín

Við erum Hugarafl.
Við erum félag jafningja sem trúir því að bati sé mögulegur. Við komum saman til að efla von, heilun, valdeflingu og tengsl – hvert hjá öðru og í samfélaginu.
Við trúum því að hver einstaklingur sé sérfræðingur í eigin lífi. Enginn skilgreinir reynslu annars. Við berum virðingu fyrir ólíkum lífssögum, ólíkum sjónarhornum og ólíkum leiðum til bata.
Við mætum hvert öðru sem jafningjar. Við hlustum af forvitni fremur en fordómum. Við deilum eigin reynslu af heiðarleika og auðmýkt og vitum að þegar ein manneskja segir sögu sína getur önnur fundið von.
Við trúum því að bati verði ekki þvingaður fram heldur verði til í öruggum tengslum, þátttöku og þeirri trú að breyting sé möguleg. Við sjáum styrkleika áður en við sjáum hindranir og möguleika áður en við sjáum takmarkanir.
Við tökum ábyrgð á eigin bata og leggjum okkar af mörkum til samfélagsins eftir getu. Við vitum að Hugarafl dafnar þegar við berum öll ábyrgð á menningunni sem við sköpum saman.
Við stöndum vörð um mannréttindi, virðingu og jafningjastuðning. Við vinnum gegn fordómum með því að láta rödd okkar heyrast og með því að sýna í verki að bati er mögulegur.
Saman erum við Hugarafl.

