
Ég og þú | Frumsamið lag úr Tónlistarsmiðju Hugarafls 2026
Ég og þú er frumsamið lag sem varð til í Tónlistarsmiðju Hugarafls dagana 20.–24. júlí 2026.
Í smiðjunni komu þátttakendur saman og sömdu lag og texta í sameiningu undir handleiðslu Völu Hugaraflsfélaga. Vikan byggði á samsköpun þar sem allar hugmyndir voru jafn mikils metnar, óháð fyrri reynslu af tónlist eða lagasmíðum.
Í gær, á lokadegi tónsmiðjunnar, fluttu þátttakendur lagið í fyrsta sinn fyrir gesti í Hugarafli og hreyfðu djúpt við samfélagssálinni.
Lag og texti: Þátttakendur í Tónlistarsmiðju Hugarafls
Leiðbeinandi: Vala Sigríður Guðmundsdóttir Yates





