Aðalfundur Hugarafls

Aðalfundur Hugarafls verður haldinn mánudaginn 5. desember nk., klukkan 10:00–12:00 og verður haldinn í fundarsal Hugarafls í Síðumúla 6, 105 Reykjavík.

10.11.22

Óskað er eftir framboðum fyrir setu í stjórn Hugarafls, til aðalstjórnar og varastjórnar, og verða framboðin að berast fyrir aðalfundinn. Þeir er bjóða sig fram þurfa að hafa verið gildir Hugaraflsfélagar í minnst eitt ár og þekkja vel til hugmyndafræðinnar og innviði starfsins, samkvæmt lögum Hugarafls. Framboð skulu berast til formanns Hugarafls í tölvupósti á netfangið frida@hugarafl.is eða í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum Hugarafls.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Ávarp formanns, aðalfundur settur

  2. Staðfest skipan fundarstjóra, fundarritara og tveggja atkvæðateljara

  3. Staðfest lögmæti aðalfundarboðs

  4. Skýrsla stjórnar

  5. Ársreikningur síðasta árs kynntur og borinn upp til samþykktar

  6. Lagabreytingar

  7. Kosning stjórnar

  8. Önnur mál

  9. Fundarslit

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar