Aðalfundur Hugarafls

Aðalfundur Hugarafls verður haldinn miðvikudaginn 18. júní nk., klukkan 13:00 – 15:00 í húsakynnum Hugarafls, Síðumúla 6, á annarri hæð. 

28.05.25

Á fundinum verður kosið til framkvæmdastjórnar Hugarafls. Óskað er eftir framboðum fyrir setu í framkvæmdastjórn Hugarafls, til stjórnarmanna og varamanna, og verða framboðin að berast fyrir aðalfundinn. Þau sem vilja bjóða sig fram þurfa að hafa verið gildir Hugaraflsfélagar í minnst eitt ár og þekkja vel til hugmyndafræðinnar og innviði starfsins, samkvæmt lögum Hugarafls. Framboð skulu berast í tölvupósti á netfangið hugarafl@hugarafl.is eða í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar.  

Lagabreytingar sem lagðar eru fyrir er að finna hér með fundarboði, sbr. hlekk hér að neðan. 

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum Hugarafls. 

Dagskrá aðalfundar: 

  • Ávarp formanns, aðalfundur settur

  • Staðfest skipan fundarstjóra, fundarritara og tveggja atkvæðateljara

  • Staðfest lögmæti aðalfundarboðs

  • Skýrsla stjórnar

  • Ársreikningur síðasta árs kynntur og borinn upp til samþykktar

  • Lagabreytingar

  • Kosning framkvæmdastjórnar

  • Önnur mál

  • Fundarslit 

Sjá má tillögur að lögum hér:

Lagabreytingar 2025

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar