13 hlauparar hlupu fyrir Hugarafl í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka

22.08.26


1 / 7

Í dag tóku 13 hlauparar þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fyrir hönd Hugarafls og söfnuðu áheitum til stuðnings starfi félagsins.

Upphaflega voru sjö hlauparar skráðir fyrir Hugarafl en í gær bættust sex starfsmenn Orkusölunnar í hópinn. Saman lögðu þau af stað í dag með eitt sameiginlegt markmið – að styðja við starf Hugarafls.

Við viljum færa öllum hlaupurunum okkar innilegar þakkir fyrir framlag þeirra. Það krefst bæði undirbúnings, tíma og elju að taka þátt í maraþoni og við erum ótrúlega þakklát fyrir að þau skyldu velja að hlaupa fyrir Hugarafl.

Við viljum einnig þakka öllum þeim sem hafa heitið á hlauparana eða lagt söfnuninni lið. Stuðningurinn skiptir okkur miklu máli og hjálpar okkur að halda áfram að byggja upp starf sem byggir á bata, tengslum og valdeflingu.

Það er enn hægt að heita á hlauparana

Þótt Reykjavíkurmaraþoninu sé nú lokið er áheitasöfnunin enn opin alla helgina.

Ef þú hefur hugsað þér að styðja hlauparana eða leggja Hugarafli lið er enn tækifæri til þess. Hvert áheit skiptir máli og styrkir áframhaldandi starf Hugarafls.

💚 Takk fyrir stuðninginn. Hvert skref skiptir máli.

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar

Svipaðar greinar