Vel sóttur kynningarfundur í Hugarafli
16.04.25
Það er dýrmætur og mikilvægur hluti af starfi Hugarafls að taka á móti nýju fólki í félagið. Reglulega eru haldnir kynningarfundir þar sem starfsemin, hugmyndafræðin og fleira eru kynnt fyrir fólki sem hefur hug á að nýta sér starfsemi Hugarafls.
Í dag tókum við á móti rúmlega 30 manns á kynningarfundi sem Grétar og Ninna halda utan um en þau starfa bæði hjá félaginu og eiga það sameiginlegt að hafa komið fyrst inn í Hugarafl sem notendur og náðu bata hér.




