Út í lífið á ný

Auður Axelsdóttir
Framkvæmdastjóri Hugarafls
Greinin birtist í Umræðunni í Morgunblaðinu 3. febrúar 2026.
2/3/26
Endurhæfingin hjá Hugarafli hefur vaxið mjög hratt á undanförnum árum og nú eru yfir 100 manns í virkri endurhæfingu hjá samtökunum. Eftirspurnin er gríðarleg eftir endurhæfingu hjá Hugarafli og á síðustu nýliðakynningu voru 17 manns sem óskuðu eftir að komast þar að. Mánaðarlega stunda rúmlega 200 manns batavinnu sína hjá Hugarafli og um helmingur er í endurhæfingu.
Endurhæfingarhópur C hjá Hugarafli hittist í viku hverri og farið er yfir stöðu mála hjá hverjum og einum þátttakanda. Þau eru að taka lokasprettinn og stíga fyrstu skrefin út í virka samfélagsþátttöku, á vinnumarkað eða í skóla. Flest fara á vinnumarkað.
Einu sinni sem oftar var ég nýlega svo lánsöm að eiga stund með C-hópnum en tæplega einstaklingar hittast í hverri viku, hitta fagaðilann sinn og farið er yfir markmið og framvindu. Opið samtal fer fram í hverri viku þar sem árangurinn er skoðaður og þær hindranir sem dúkka upp á leiðinni og sömuleiðis sigrarnir. Lífssagan er rifjuð upp og endurskoðuð.
Það var einstakt að heyra hverja söguna af annarri af árangri og sigrum. Öll hafa stundað endurhæfingu hjá Hugarafli í töluverðan tíma, þ.e. tvö til þrjú ár. Vegferðin hefur ekki verið létt og það hefur reynt á seiglu og úthald. Það þrf kjark til að stíga inn í ferlið og úthald til að takast á við bataferlið. Það fara fram stöðugar æfingar út fyrir „þægindarammann“, endurskoða þarf lífssöguna og fyrri mynstur sem mögulega voru hamlandi og finna heilbrigðari leiðir. Vonin er stundum þverrandi en viljinn sterkari en uppgjöf. Það að vinna saman í hópi gefur stöðuga og dýrmæta endurgjöf og oft er lánuð von sem er lífsnauðsynleg. Óttinn er oft sterkur þegar kemur að því að breyta lífinu og rannsaka nýjar leiðir. Trúin á eigin áhrifamátt er oft víðs fjarri í upphafi en þessi hópur tekst á við óttann af öllu afli og ætlar sér áfram.

Öll hafa unnið með bjargráð til að takast á við nýjan veruleika. Öll hafa unnið að því að ná jafnvægi í daglegu lífi. Unnið er að því að áföll og erfiðleikar orsaki ekki lengur bakslög, heldur að hægt verði að taka því sem höndum ber í dagsins önn, án þess að gefast upp.
Hver og einn þátttakandi ræddi hvernig líðanin var í upphafi og svo núna á lokasprettinum og ekki er saman að jafna. Styrkleikar sem mögulega hafa ekki látið á sér kræla lengi eru endurheimtir, draumar sem hafa verið settir til hliðar eru sóttir til baka eða jafnvel endurskoðaðir. Færnin sem virtist vera farin fær loks að njóta sín.
Þetta er mikilvægur árangur sem má ekki líta fram hjá og vitnisburður um ótrúlega seiglu þátttakenda sem velja að endurskoða líf sitt.
Það var mögnuð upplifun að eiga þessa stund með hópnum og ég vildi óska þess að ráðamenn og aðrir sem koma að ákvarðanatöku varðandi endurhæfingarmál hefðu haft tækifæri til þess. Að þau hefðu náð að skilja verðmæti þess að einstaklingur leggi upp í þetta ferðalag; að ganga í gegnum endurhæfingu og endurskoða líf sitt.
Hjá Hugarafli er lögð áhersla á að það gefist nægur tími til endurhæfingar, að það sé veitt tækifæri til að vera á eigin forsendum og jafnframt með jafningjum. Samstarf notenda og fagfólks er lykilatriði. Mikilvægi þess að vera í hópi er ótvírætt og eins að tilheyra því samfélagi sem á sér stað í Hugarafli alla daga. Valdefling og bati er leiðarljósið. Það felast mikil verðmæti í því að notendur geðheilbrigðisþjónustunnar hafi aðgang að slíku starfi, sem er opið öllum landsmönnum.
Í niðurstöðum rannsóknar Gallup á þjónustu Hugarafls sem gerð var á sumarmánuðum kemur m.a. fram að 71,8% höfðu litla trú á því að komast aftur út í vinnu eða skóla þegar þau byrjuðu í Hugarafli. Aðeins 11,8% töldu sig geta farið til vinnu eða náms.
Eftir töluverðan tíma í endurhæfingu höfðu hins vegar 50% trú á því að þau gætu stundað nám eða atvinnu og aðeins 21% hafði litla trú á því að komast á vinnumarkað.
67% þeirra sem óska eftir endurhæfingu hjá Hugarafli er fólk sem hefur verið í þjónustu annars staðar, rekist á hindranir og verið vísað frá án þess að það sé í raun fullreynt að endurhæfing geti átt sér stað. Það er því gríðarlega mikilvægt að endurhæfing eins og hjá Hugarafli, sem byggist á öðrum gildum en hefðbundin endurhæfingarþjónusta, fái almennilegt brautargengi þar sem ofangreind gagnreynd rannsókn sýnir mjög eftirtektarverðan árangur.
Tæplega 70% einstaklinga sem leita þjónustu hjá Hugarafli telja hana vera umfram þær væntingar sem þau bjuggust við.
80,8% af þeim sem stunda endurhæfingu hjá Hugarafli eru ánægð með endurhæfinguna.
Hópurinn sem hér er rætt um er hópur sem nú er á leiðinni út í lífið og er samfélagi okkar dýrmætur mannauður. Velgengni þessara einstaklinga er ótvíræður vitnisburður um gagnreynda þjónustu Hugarafls sem byggist fyrst og fremst á valdeflingu og batamiðaðri nálgun.
Enginn þarf að segja skilið við Hugarafl þegar endurhæfingu lýkur heldur getur átt sitt bakland þar eins lengi og vikomandi kýs.
Þetta er mikilvægur árangur sem má ekki líta fram hjá og vitnisburður um ótrúlega seiglu þátttakenda sem velja að endurskoða líf sitt og öðlast önnur hlutverk í samfélaginu.


